Getið þið sagt mér af hverju,
þegar maður á nammi, er ekki hægt að geyma það? Þetta er
ótrúlegt, hún Hallan mín gaf mér nammi í tilefni ferðarinnar
minnar. Og mér hefur bara alls ekkert langað í það, en samt
einhvern vegin þegar ég opnaði það áðan (og ég skil ekki af
hverju ég gerði það) þá tókst mér að borða alveg slatta!!! Ekki
sniðugt

En vá mér er ekki alveg að lítast á
það að hafa net hérna heima. Það þýðir að ég gæti orðið háð því á
herjum degi að tala við fólk á msn... ekki sniðugt. En net og ekki
net, þetta dettur út eins og ég veit ekki hvað. En ekki ætla ég að
kvarta yfir því !! 
Að skemmtilegri hlutum- ég er búin að
eyða eiginlega öllum pundunum sem ég keypti á sunnudagsmorgun
Ég
þurfti að kaupa mér sjálf pils og blússu til að vera í í vinnunni.
Hehe ætti kannski ekki að orða þetta svona.. eyðddi víst ekki 300
pundum í það!! En það þarf að borga leigu og svo sér maður eitthvað
sætt. Þetta er örugglega ástæðan fyrir því að ég fór ekkert í
verslunarleiðangra nema spari spari þegar ég var í Rvík síðasta
mánuðinn 
En allavega... er að bíða eftir að
Berglind hætti að leika sér á netinu á netkaffinu sínu. Við ætlum
að fara og “elda” okkur eitthvað gott saman. Með öðrum orðum þá
ætla ég að eyða mínum síðustu aurum á skyndibitastað. Neinei þetta
er ekki svo slæmt hjá mér. Maður á getur alltaf fundið peninga
einhvers staðar.
Ég held ég sé eitthvað skrýtin... ég
er ekki ennþá byrjuð að sakna ykkur. Er það gott eða slæmt? En ekki
örvænta gott fólk, ég mun detta bráðlega ofan í eitthvað
þunglyndi.. svo það er eins gott að fólk fari að panta sér miða til
útlanda til að hressa mig. Helst til Englands sko þar sem mér myndi
ekkert finnast það skemmtilegt ef þið slepptuð því að koma til
þessa yndislega lands sko 
Svo fór ég í kynningsferð um hótelið
mitt í dag og það er bara mjög fínt. En veit reyndar voðalega lítið
um þetta allt núna þar sem ég byrja ekki að vinna þarna fyrr en á
morgun. Verð örugglega að vinna tvær vaktir á dag, fjóra tíma hvor
(held ég). Þá tek ég annað hvort morgunmatinn, hád.matinn eða
kvöldmatinn. Og svo er það náttúrulega skólinn sem er á mánudögum
og miðvikudögum. Já og svo fáum við ekki vaktaplan nema fyrir viku
í einu mér til mikillar gremju. Hún Fanný Lilja getur sem sagt ekki
skipulagt fram í tímann eins og henni einni er lagið 
En ég nenni þessu ekki lengur... eða
jú, verð víst að láta fólkið mitt vita að ég gat ekki keypt símkort
í dag. Það var eitthvað rugl á staðnum sem ég ætlaði að kaupa það.
Hann sgaði að tölvan væri eitthvað að beila þar sem hann gat ekki
náð sambandi til að skrá kortið. Þannig að mín mun reyna aftur á
morgun eftir vinnu/skóla. Ef tölvan vinnur ekki með honum þá, þá er
það bara annað símafyrirtæki!
En heyri í ykkur öllum
síðar.
Love Fanný Bournemouth-búi